Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. mun birta ársuppgjör félagsins (tímabilið 1. mars 2022 til 28. febrúar 2023), eftir lokun markaða á morgun, þriðjudaginn 18. apríl 2023.

Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn sama dag, þriðjudaginn 18. apríl 2023 klukkan 16:30. Á fundinum kynna stjórnendur rekstur og afkomu félagsins og svara spurningum.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði Ölgerðarinnar að Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík. Fundinum verður einnig streymt.

Skráning á viðburðinn fer fram á heimasíðu Ölgerðarinnar, www.olgerdin.is


© OMX, source GlobeNewswire - EU Press Releases