Í viku 26 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.540.000 eigin hluti að kaupverði 51.975.000kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
26.6.202309:36:45385.00034,1013.128.500
27.6.202310:15:18385.00034,0013.090.000
29.6.202309:32:26385.00033,1012.743.500
30.6.202310:28:21385.00033,8013.013.000
Samtals 1.540.000 51.975.000
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 17.05.2023.

Sjóvá átti 10.514.266 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 12.054.266 eigin hluti eða sem nemur 1,02% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 4.870.358 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,41% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 166.203.950 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.331.378 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,23% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. september 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is